29.09.2006 16:31:09 / Muggur

REMINDER

Bara fyrir þá sem að vita ekki þá er Muggsi kominn með nýja síðu..

www.muggurinn.bloggar.is

Endilega haldið áfram að fylgjast með og breytið linkum í þessa síðu.. takktakk..

Kv.. Muggurinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 17:15:35 / Muggur

Loksins Blogg.. !!

Já Sælt veri fólkið..

Úfff,, já komiði öll blessuð og sæl.. Hvað er að ske. Chealsea dottið út úr Meistaradeildinni, Match Point lélegasta mynd allra tíma er í bíó, Sister Diet báðir brotnir eftir viðburði þar síðustu helgar ( Helgi = tábrotinn , Davíð = Viðbeinsbrotinn ) og já síðast en ekki síst skal ég segja ykkur,, Muggur Moðhaus er að snúa aftur. Já síðasti , hva rúmi mánuður hefur verið með eindæmum góður. Reyndar einum of skipulagður , eða reyndar er það bara gott, allavega líður mér bara vel. Já endalaust hefur að gera eftir að bílprófið kom í hús. Skóli, Vinna , Karfan og Kærastan og Vinirnir. Já mikið hefur sko gerst og er nú ekki séns að ég nái að segja ykkur allt þetta skemmtilega en ég ætla að fara svona yfir það sem að kemur mér fyrst í hug..

 Já fyrst má segja frá því þegar að YFIR MUGGURINN, Jens Arnar bróðir minn ákvað að yfirgefa landið fyrir ástina og flytja til ,,ástarinnar sinnar,, í Danaveldi og er það nú allt gott og blessað og Muggabróðirinn rosalega ánægður með lífið. Reyndar verð ég að viðurkenna það að ég sakna þess að hafa engann til þess að kýla mig í öxlina og segja vera stærri og sterkari þegar viðkomandi er 10 cm minni ;) Já við erum bestu vinir og má segja að það sé skrýtið að hafa Engilbertinn ekki á klakanum. Já eftir að hann fór út þá tók ég við Silfurlitðuðu Eldingunni ( Peugeot 307 ), en var það bíllinn hjá Síníornum. Já tók ég yfir rekstrarleigunni á bílnum og er ég því að vinna við að þrífa bíla þessa dagana til þess að hafa undan því að borga af djásninu :D En já gengur það nú bara mjög vel, yfir bónarinn hann pabbi druslar mér áfram og hjálpar til svona þegar hann nennir að beygja bumbuna ;)....

Já þetta er búið að vera stór hluti síðustu vikna, svo er það karfan. Já hafa leikjunum verið að rigna yfir okkur í öllum flokkum í bikarkeppnum og íslandsmóti. Já ekkert lát er á leikjum og álagið bara rosalegt. Gengið hefur verið ansi gott Reyndar gerðist sá ljóti atburður í gær að fyrsta tap 1989 árgangsins í tæp 4 og hálft ár leit dagsins ljós og það í bikarúrslitaleik gegn valsmönnum. En svona er bara lífið og voru þeir bara mjög góðir í þessum leik á meðan að við lentum í villuvandræðum og svona veseni. En já svo er úrslitakeppni meistaraflokks að fara byrja og fáum við ÍR-inga í heimsókn í fyrstu umferð. Gaman það og verður fróðlegt að sjá hvernig við mætum tilbúnir í þetta einvígi. Já ég kem meira að körfunni í næsta bloggi :P

Image

Annars hefur skólinn verið að sækja í sig veðrið núna þessa dagana og eru próf að dynja yfir okkur þessa dagana. Gaman af því og má segja að maður þurfi að skipuleggja tímann sinn vel ef að allt á ekki að fara til fjandans.. Já ég hef verið nokkuð slakur á þessu en ætla að fara taka þetta aðeins alvarlegra núna. En ég ætla aðeins að segja ykkur frá því að um daginn kom einn mjög skemmtilegur kall og hélt fyrirlestur fyrir nemendur FS,, Var það hinn eini sanni Hollywood búi Stefán Karl Regnbogabarn. Hann messaði yfir okkur um einelti og ofbeldi af ýmsum toga en setti hann boðskap sinn í mjög skemmtilegan búning og má segja að allir nemendurnir sem voru á sal skólans hafi grátið úr hlátri. Maðurinn er bara óstjórnlega fyndinn og mæli ég með því að allir fari og sjái manninn halda fyrirlestur. Fæddur snillingur..

En já annars er líf Muggsins bara rosalega gott þessa dagana og verð ég ekki mikið ánægðari með lífið. Auðvitað er aldrei gaman að tapa í körfubolta en lífið heldur jú áfram og fáum við að hefna okkar áður en langt um líður. Það sem eftir er af vetrinum lítur nú alveg ágætlega út og og svo sé ég sumarið sem eitt besta sumar í langan tíma. Allavega er það sem ég er að búast við en hver veit.. Já ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni en ég get lofað ykkur því að Muggurinn er mættur aftur í bloggheiminn og endilega setjið þessa síðu aftur í ykkar daglega rúnt.. ;)

Einnig ætla ég að minna ykkur sem vitið ekki af annarri síðu sem ég á www.123.is/muggar . Endilega skoðið hana samhliða þessari enda stórskemmtileg síða þarna á ferðinni.. En já þið farið bara varlega með ykkur þangað til næst. LÍF og FJÖR... ;)

Lög Dagsins : I Remember með Damien Rice og Evil með Interpol.

Muggur Moðhaus


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 15:27:42 / Muggur

-=2005=-

 

Jæja þá er komið að Blogg Annál ársins 2005. Var þetta mjög annasamt ár í lífi Muggsins og var þetta ár eitt það viðburðarríkasta til þessa í lífi mínu. Árið byrjaði nú rólega en fljótlega fóru stórir hlutir að gerast og má segja að brjálað hafi verið að gera mest allt árið. Nú ætla ég að segja svona frá því helsta frá mánuði til mánuðs.

Já árið byrjaði á ansi rólegum Janúar mánuði og var lítið annað gert en að vera í skólanum og keppa, brjálað var að gera í körfunni á þessum tíma og má segja að mikið álag hafi verið svona í byrjun árs. Svo í lok Janúar náði Muggurinn svo þeim merka áfanga að verða 16 ára. Já var kappinn afar ánægður með það og ætlaði að byrja eins og skot í ökukennslu. En nei nei aldrei fannst tími og var því frestað til vors.

Febrúar kom svo á fleygiferð og var afar fljótur að líða, próf voru í febrúarmánuði og var maður að vanda með toppeinkunnir. Eins og í Janúar var nú ekki mikið að ske nema bara skóli og körfubolti. Það sem að stendur uppúr er nú Bikarmeistaratitill Njarðvíkur í körfunni (mynd ) og má segja að það hafi verið hápunktur mánaðarins

Strákarnir kunna sko alveg að fagna 

 

 

 

 

Svo kom Marsmánuður, já þá fóru sko hlutir að gerast. Körfuboltinn á milljón og voru bíkarúrslit yngri flokka þar hæst á blaði. Unnum við þar 2 góða titla í 10 og 11 flokki og má segja að sá árangur hafi verið nokkuð góður ! Svo var skólinn á fullu þar sem kennarar voru farnir að missa sig gersamlega í stressi fyrir samræmdu prófin, var það nú óþarfi en svona eru þessir kennarar nú. En já í Mars mánuði gerðist líka sá skemmtilegi hlutur að Myllubakkaskóli ákvað að setja upp söngleik um grænu geimverurnar Hatt og Fatt. Já var Muggurinn draftaður í hlutverk Hatts og já var smá kvíði þá. Í kjölfarið af þessu þá prufaði ég í fyrsta skipti eftir að ég komst á unglingsárin að syngja í míkrófón. Já sú tilfinning ekki sú besta þegar maður býr yfir þeim hæfileikum að geta ekki sungið og vera gríðar falskur :D En já æfingin skapar meistarann er víst gott orðtak sem á við um þetta, þó að ég hafi nú ekki orðið neinn meistari þá sigraðist ég á stressinu og byrjaði að bæta mig nokkuð mikið. Árshátíð grunnskóla Reykjanesbæjar var haldin og var það þolraun fyrir Mugginn en áttu hann og Segullinn ( Helgi ) að syngja og dansa í skemmtiatriði Myllubakkaskóla. Fórum við á svið og sungum Killing in the name of í leður outfitti og skutluðum okkur svo úr því hommabrasi og nibbuðum okkur á wifebeaterinn (Sterabolur) og dönsuðum fögur spor við lag Donnu Summer, Hot Stuff. Já gaman gaman og fenguð við mikið lof frá áhorfendum. Stuttu síðar var það Stundin Okkar, já þá voru Grænu Kallarnir að komast á sporið en ennþá ansi ryðgaðir. Beint inná Rúv í þáttinn hjá Bárði og Birtu og má segja að það hafi verið önnur þolraunin. Nokkuð skemmtileg reynsla og fyrsta sinn sem að maður fór alveg í geimveru ham.. :D Já svo voru brjálaðar æfingar hjá Myllunni og körfuboltanum og snérist lífið ekki um annað.

Apríl kom alveg galvaskur uppað manni og páskarnir voru í byrjun Apríl. Þá voru landsliðsæfingar í bland við æfingar á Hatt og Fatt. Körfuboltinn var líka í milkum ham og úrslit Íslandsmótsins í yngri flokkum á dagskrá. Náði Muggurinn 2 Íslandsmeistartitlum í 10.flokki og Unglingaflokki og var þá tala stórra titla hjá Moðhausnum komin í 20. Á sömu helgi var einnig mjög skemmtileg reynsla sem að Muggurinn fékk. Jájá það var sungið inná geisladisk fyrir Hatt&Fatt. Já var það mjög gaman og mikil vinna í þessu. Mjög gaman að prufa að syngja svona í stúdíói og var greinileg bæting hjá kappanum.. Á þessum tíma var mikið af æfingum bæði í Hatt og Fatt og svo í lok mánaðarins þá byrjaði lokaundirbúningur fyrir Norðurlandamótið sem var í Maí. Svo kom loksins að sýningum á Hatt og Fatt og var það eitt af því skemmtilegasta sem að ég hef gert. Já kvöld eftir kvöld var húsið fullt af nýjum og reyndar stundum gömlum andlitum og voru sýningarnar held ég um 13 á 13 dögum,, stundum 2 á dag. Já í byrjun Maí voru lokasýningar og var ,,Meistaraverkið,, tekið upp og síðar gefið út á DVD..

Maí, úff það var sko mikilvægur mánuður. 4 Maí var flogið til Svíþjóðar og leiðin lá til Solna sem er úthverfi Stokkhólms. Gist var á Scandic Jarvakrog hótelinu og voru 4 íslensk lið í förinni. U16 og U18 karla og kvenna og var stemmingin mikil. Já 5 Maí var stór dagur, fyrsti landsleikur Muggsins og var hann gegn Svíþjóð. Já gaman af því og Muggurinn fyrirliði liðsins og með marga góða vini sína með ( Ellmund, HeartBeat, Þröllmundur og Frits ). Já sigur vannst í þessum leik og stóru fargi af manni létt. Næsta dag voru svo 2 leikir,, við Danmörku og Noreg. Unnust þeir báðir og var það bara mjög gaman. Veikindi voru að hrjá Mugginn en mikið þjónusta frá farastjórum héldu ælupestinni í skefjum. Svo var komið að 4 leiknum og var hann gegn Finnum og vannst hann einnig örugglega og besti leikur liðsins. Úrslitaleikur við Svía því niðurstaðan og daginn eftir var mikið af fólki samankomið að sjá þann leik. Því miður tapaðist hann naumlega en engu að síður annað sætið og dýrmæt reynsla komin í bankann. Daginn eftir þessa 5 daga ferð var svo Samræmda prófið í Íslensku og var mikið stress þar sem engin möguleiki var á að læra fyrir þetta. En svo liðu 2 vikur sem voru tileinkaðar prófunum og gekk bara vel. Það sem eftir var af Maí var bara chill og smá æfingar. En loksins fékk Muggurinn smá tíma til þess að chilla en liðnir voru hátt í 3 mánuðir síðan það var.

 Já Júní mánuður gekk í garð með sumarblíðu og var 10.bekkjar ferðlag þar fyrst á dagskrá. Leiðin lá að Hofi í Öræfum og var um snilldar ferð að ræða. Já allir hressir og stemming enda var mikið fyrir stafni. River Rafting, Paint Ball, Sigling í Jökulsárlóni, Gönguferð í Ingólfshöfða, Klifur og Sig eru dæmi um hluti sem voru nibbaðir. Já ekki leiðinlegt það og var þetta mjög skemmtilegt. Gaman að geta kvatt skólann með þessum hætti. Já svo var komið heim og eina sem hugsað var um voru niðurstöður prófa.. Já fróðlegt var að sjá mínar einkunnir þar sem lítill tími til lærdóms var mánuðina fyrir en engu að síður gekk þetta framar öllum vonum og var Muggurinn með hæstu meðaleinkunn frá Myllubakkaskóla ásamt Trauaranum. Bækur og viðurkenningarskjöl ásamt stafrænni myndavél voru verðlaun sem að Moðhausinn fékk og var hæstánægður með það. Hélt kallinn ræðu og kvaddi maður skólann með miklum söknuði. En já þá var sko bara komið sumar og alvaran tekin við. Kallinn loksins með smá tíma fyrir sig og þá var kominn tími til að læra að keyra bíl. Loksins. Svo þurfti maður að fara vinna, já Runks var sneaky og laumaði sér til að fá borgað frá bænum við að æfa körfu í Reykjavík. Jább ég , Einsi Coach , Óli og Alma fórum morgun hvern í Smáþorpið Reykjavík og æfðum í 4 tíma. Fann bestu búð á Íslandi og fékk að ,,tanna,, smá í sundlaugunum,, jájá aldrei hef ég verið brúnn en þarna var ég nálægt því. Já með þessum æfingum voru svo flestar helgar tileinkaðar landsliðinu. Jájá æfðum við eins og dýr allar helgar og fengum við að kynnast mjög vel á þessum tíma. Já svo kannski það sem er minnistæðast úr Júní er uppákoman á 17.júní. En já hvað haldiði, eftir öll afrekin með Hatt&Fatt og vera búinn að sigrast á stressinu þá þurfti ég nottla að finna mér annað challenge og viti menn,, áttum við ekki að vera með smá söngbrot í skrúðgarðinum fyrir framan þúsundir manna í veðurblíðunni á þjóðhátíðardaginn.. Já var það mjög gaman og klikkaði ég meira segja smá sem að gerir þetta ennþá minnisstæðara. Svo daginn eftir var lokapartý Hatt&Fatt og má segja að því hafi formlega verið endað þá..

Svo kom Júlí, Sumarið í hápunkti og ekkert komst að annað en karfan. Körfubolti Körfubolti Körfubolti,, þetta var það eina sem ég hugsaði um og var það reyndar ekki skrýtið. Æfandi alla morgna og kvölds og svo allar helgar þessa mánaðar voru landsliðsæfingar. Mjög góðar stundir í Borgarnesi og ennþá betri stundir í lokahelginni í Njarðvík. Já æfingar, chill, sund, Bláa Lónið, sofa , borða og svo fleiri æfingar.. Já þvílík skemmtun og var hópurinn orðinn vel þjappaður saman. Já var maður svo bara í smá slökun undir miðbik mánaðarins þar sem vinirnir voru útí útlöndum. Já svo voru einir tónleikar í Júlí mánuði en það var þegar risa negrinn Snoop a Loop kíkti á klakann.. þá var sko stuð. En svo kom að þessari Evrópukeppni sem var búið að bíða eftir lengi !! Flogið var á London og þaðan til Madrid ,, já beint í sólina komum við íslensku drengirnir vel tilbúnir í erfiða keppni. Já fórum fyrst í lítin bæ og spiluðum 3 leiki á móti stórum þjóðum og lutum í lægra haldi. Mikið var um að menn væru að tékka stelpurnar í þeim bæ en svo fórum við í stóra borg sem var þarna í nágrenninu. Þar spiluðum við næstu leiki. Já enduðum svo á því að vinna 2 leiki og halda okkur í A-deild sem var markmiðið,, já ekki leiðinlegt það sko. Já mikið var verslað og reynt að verða brúnir en eitthvað gekk það illa, þó fékk maður smávegis lit.

Já þegar að við komum heim í byrjun Ágúst eftir 2 vikur á Spáni fékk maður 2 viku í frí frá körfu. Já chill og aftur chill. Fínt áður en að skólinn byrjaði og var þetta fyrsta árið í Framhaldsskóla. Já signaði ég Akademíuna ásamt fleirum og æfði þar alla morgna. Kjánalegt að byrja í svona nýjum skóla og allt öðru umhverfi. Og eftir að hafa verið í toppmálum svona elstur í Myllunni og koma svo í FS eins og alger RAG var bara heimskt.. Já byrjaði svo aftur að æfa og var ég að lagast. Mest megnis bara chill þarna nema að kallinn varð sjálfstæður og nibbaði sér í Kjallarann.. Jájá fékk Litla kjallaraíbúð heima og var það sterkt múv. Viðburður mánaðins var samt ábbla Menningarnótt sem var reyndar ekkert rosa gaman á.. En samt stemmari

September -- Já má segja að þetta hafi verið fínn mánuður.. Mest megnis bara skóli, karfan og chill.. Já ávallt gat maður bara verið í toppmálum og ánægður með lífið en var Pre-Season á fullu í körfunni og má segja að við höfum rústað því. Já Ljósanóttin, hin eina sanna var og má segja að það hafi verið afar gaman.. Maður að eldast og meira frelsi svona en já það var gaman að fylgjast með öllu bullinu á staðnum og sumir bara í bullinu.. Um miðjan mánuðinn var komið að fyrsta framhaldskólaballinu.. Já var það helvíti skrýtið.. Allir gersamlega í bullinu og svona og þvílíkt stuð.. jájá gaman af því.. Alltaf lærir maður eikkað nýtt.. Svo var það Greifamótið í körfu og fórum við eina helgi á Akureyri og var það gríðar gaman.. Lærðum við orðið NIBB og má segja að það hafi gjörbreytt öllu... úfff.. Annars var lítið að ske þarna í þessum mánuði nema bara skólinn að komast á skrið og svona skemmtileg heit..

Já Október byrjaði nú heldur betur vel. Til Danaveldis var haldið með Njarðvíkurliðinu til að keppa á æfingamóti í Árhúsum,, já 13 leikmenn + þjálfarar og fararstjórar lögðu í þessa ferð og má segja að um skemmtilega ferð hafi verið að ræða.. Your Gonna Get Your Fuckin Ass Kicked In varð kjörorð meistaraflokksins og trylltum við heilu veitingahúsin með fíflaskap.. Enda rugludallar með í för. Svo var nibbað sér til Köben síðasta kvöldið og skemmt sér smávegis og var það nú bara helvíti fínt. Svo var nú bara rólegheit eftir að komið var heim. Bara skólinn og karfan gengu sinn vanagang og allt í fullu fjöri.. Maður var farinn að kynnast fólkinu í skólanum betur og því meira stuð. Já kallinn bara hafði já mikið að gera og ávalt gaman af því.

Já svo kom hinn eini sanni Nóvember. Já má segja að hann hafi byrjað fínt og var ég farinn að bíða mjög spenntur eftir bílprófinu. Annað ball FS var haldið og var þvílíkt stuð og má segja að ég hafi verið afar hress.. Já svo var það vanalega karfan og skóli og svo bara chillið og svona. En í körfunni komumst við í úrslit í Powerade bikarnum og unnum hann auðvitað.. Já kom nottla ekkert annað til greina og já má segja að eftir það varð ég heppnasti maðurinn.. Já allt gekk gríðar vel í körfu og skóla og svo var mesta afrek ársins, já náði Muggurinn ekki bara að næla sér í eina gullfallega stelpu ofan á allt annað. Já einhvernveginn fór ég nú að því að næla mér í svona gullmola, veit ekki alveg hvernig..:P Greinilegt að græni kallinn gat heillað og já má segja að lífið hafi breyst til hins betra þá.. Já glottið fór ekki Muggnum það sem eftir lifði af Nóvember og sást það langar leiðir að Muggurinn væri eins sáttur með lífið og hann gat verið. Fór líka á tónleika ársins þegar Sigur Rós spilaði í höllinni og má segja að það hafi sett sinnepið á pulluna á frábærum mánuði..

Já lokamánuður ársins var svo bara voðalega fínn. Byrjaði á lokaprófum FS og var það nú eitt heljarinnar NIBB.. Já var latur á önninni enda mikið að gera en svo bara reddaðist þetta allt með fínum einkunnum.. Já náði Moðhausinn ekki bara öllu og fínar einkunnir. Ekki leiðinlegt það..Svo var komið að því að snúa aftur í Mylluna og voru Hattur&Fattur fengnir sem special gestir á Jólasýningu Myllubakkaskóla og sungum þar lög og má segja að það hafi verið gaman. Má samt segja að endalaust hafi verið að gera í Desember. Klára skólann, Karfan, vinirnir og kærastan en þannig finnst mér best að hafa þetta.. Alltaf brjálað að gera og alltaf allt fullbókað.. En þegar jólin fóru að nálgast róaðist aðeins og fékk maður smá chill tíma. Já Jólin og Áramótin alveg yndisleg og var þetta alveg stórfenglegur endir á mögnuðu ári. Ég fór á eina tónleika í Desember en voru það tónleikar Antony And The Johnsons í Fríkirkjunni.. úff frábær stund.. Svo byrjaði ég líka að æfa með U18 landsliðinu og gekk það vel.. og ætlar Muggurinn sér að komast í 2 keppnir á þessu ári..

En já núna er ég búinn að fara svona í löngum en samt grófum dráttum yfir viðburði árins hjá Muggabandalaginu og eins og þið sáuð var sko ekkert chill á þessu ári og margt sem að Muggurinn afrekaði.. Margir eiga þakkir fyrir að hafa verið alveg mjög góðir við Mugginn á árinu en segi ég það hérna eftir smá.. Fyrst ætla ég að segja nokkra titla árins..

Lög Ársins: Já margir tónlistarmenn heilluðu Mugginn á árinu.. James Blunt, Antony and the Johnsons, Sigur Rós, Mugison, Hjálmar, Emilíana Torrini, auðvitað Kóngurinn,, Bubbi Morthens og vitaskuld Damien Rice.. Já einnig voru margir aðrir sem að áttu góð lög sem að ég bara hætti ekki að vilja heyra á árinu. Hide and Seek, Father and Son, Beverly Hills, Draumur, Hallelujah, Let Me Love You ( úff þetta var í jan og feb ) , Sunset, Ég elska þig, Anna, Slide og svo auðvitað miklu fleiri..

Ferð Ársins: Já af þremur utanlandsferðum stendur Spánarferðin uppúr.. Þvílíkt gull þessi ferð og mun maður muna eftir henni lengi.. Allt sem skeði, pókerinn, tanið, sigrarnir, og sáru töpin. Já verslunarferðirnar og nuddarinn.. Já þetta er eikkað sem að við munum muna eftir.. Reyndar var svo skólaferðalagið alveg GEGGJAÐ líka og kemur það fast á eftir í öðru sæti..

Afrek Ársins: Já úff prufaði Paint Ball og River Rafting í fyrsta skipti. Fyrsti Landsleikurinn, Kláraði Grunnskóla, Lærði á Bíl, Byrjaði í Framhaldsskóla, spilaði minn fyrsta opinbera meistaraflokks leik og eignaðist yndislega kærustu.. Að auki söng ég svo þvílíkt mikið, og fékk að leika græna geimveru.. Toppiði það? :D

Orð Ársins: Nibb, RAG ( Ragdog ), Mamma þín er ... , Your gonna get your fuckin ass kicked in, you Wanker, Naut, Viðurstyggð , Ógeðis ... ( þessi 2 á camilla ), Geypilega, Stórfenglegt og Glimrandi. Já þetta er nú bara smá Nibbingur..

Já svo vil ég þakka ykkur öllum fyrir að hafa skoðað síðuna mína á árinu, Helgi og Dabbi ( SisterDiet), Anna og Steinunn, Alma og Prímos, Ásta Rós, Helga J, Camilla, Bryndís Vaff, Hilmar, Helga Maren, Sandra, Hafdís Ósk, Steffý, Stelpa í kef :D, Harpa, -Zoom- systurnar, Ósk, Jenni, Elías, Þröstur, Hafrún, og já allir aðrir sem að commenta hjá mér..

En núna fer þetta að verða búið.. Kallinn að fá bílpróf á morgun og verður Muggurinn 17 ára.. Já svo kemur fljótlega nýtt blogg.. Haldið áfram að skoða og takk fyrir mig..

LÍF OG FJÖR..

Kv. Muggur Moðhaus -

Síbrosandi..

» 40 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 17:01:03 / Muggur

Nothing Brings Me Down. Skólinn af stað.

Hæ Fólk,

Já Muggurinn er kominn á fullt í allt Nibb núna eftir jólatörnina,, jájá Skólinn kominn af stað og jólaskrautið farið úr hillunum. Nýbúar gera allt vitlaust í útsölum allstaðar.. Allt eru þetta einkenni besta mánuðs á árinu, Janúar. Muggurinn hefur haft nóg fyrir stafni eins og vanalega og ætla ég að byrja að segja ykkur frá síðustu helgi..

Já Laugardagurinn 7.janúar var síðustu helgi og má segja að menn hafi verið þreyttir. Vaknaði ég og skellti mér á létta æfingu með meistaraflokki og fór svo í Grindavík og horfði á leik þar hjá Ölmu og svo skundaði ég í bæinn þar sem ég var að keppa gegn Fjölni í U.fl. Toppslagur þar og endaði hann með góðum sigri okkar, setti Muggurinn 14 stig og var ég ánægður með minn leik. Svo fór ég beinustu leið uppí Laugardalshöll á Stórtónleika Hættu Hópsins, Hitti ég þar Ölmu og skemmtum við okkur gríðar vel og var gaman að sjá alla þessa listamenn gera allt brjálað. Egó kláraði dæmið með magnaðarri frammistöðu og fóru allir sáttir heim.  Svo var Sunnudagurinn bara nibb, fórum í Þorlákshöfn og unnum í svona leiðindaleik og jájá bara fínt. Eftir það fór ég í stelpu afmælisveislu til Ölmu og má segja að það hafi verið fínt bara, 8 sveitastelpur saman er bara rosalegt, og alveg steiktur hlátur í öllum og það allt saman í hrærigraut var bara já.. Mjög gaman af þessu. Ég þarna alveg útúr öllu en það reddaðist alveg á endanum. Umræðurnar voru líka komnar útí smáatriði sem að strákar þurfa ekkert að vita og já,, þá datt ég bara út í smástund og reddaði þessu..

En svo kom skólavikan og byrjaði hún ágætlega og var gaman að þessu, á mánudag var líka leikur í Unglingaflokki gegn Snæfell og setti Muggson 19 stig í léttum leik.. Fínasta skemmtun svo sem,, en já svo er kallinn búinn að halda sína fyrstu ræðu í SAM og var það um RistaðBrauðs diskinn minn, en það er sko uppáhaldsdiskurinn minn og bragðast RistaðBrauð ávallt afbragðs vel á honum.. En svo er maður að venjast skólanum aftur og verður þessi önn væntanlega bara voða fín.

Um helgina eru 2 leikir, föstudag kl: 7 og Sunnudag: 4 og eru þeir báðir í Ljónagryfjunni og seinni leikurinn gegn FSu sem eru með gríðarsterkt lið. Á laugardag skellir maður sér svo í bæinn og horfir á Ölmu í Stjörnuleik KKÍ og verður körfuboltadagur þann dag, gríðar gaman og mikið fjör.. En segi meira seinna frá helginni. En þið bloggaðdáendur getið beðið spennt núna því næsta blogg er einmitt Áramótabloggið langþráða. Minni á að tékka þetta.. En jább stutt og gott í dag og þangað til næst, Líf og Fjör.

P.S. Go fuck a Goat.

Lög Dagsins: Where'd You Go með Fort Minor og Inside með BangGang.

Damien Rice í Höllinni. Rosalegt.

Kv. Muggur Moðhaus - Bara alveg PSSSSSSS


» 23 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 18:58:14 / Muggur

Margt Býr í Myrkrinu. Hmm,, Ferðalög RRRRRR

Góðan Dag.

Já gott fólk Gleðilegt árið, Muggurinn hefur verið mjög annsamur síðustu viku þar sem brjálað er að gera í körfunni og skólinn að byrja aftur og svona,, sem sagt enginn frítími til þess að setjast niður og nibba einum pistli í ykkur bloggþyrstu sem að skoða þessa síðu. Ég hef verið að vinna í Bloggannál um árið 2005 og er svona að klára hann en hann þarf að bíða þar sem ég bara varð að blogga aðeins um síðustu viku. Hann mun koma inn á næstunni. En já ég ætla aðeins að skrifa um síðustu dagana á síðasta ári og þessa daga sem liðnir eru á nýja árinu, nóg var allavega að ske get ég sagt ykkur.

30 des var stór dagur þar sem nágrannaslagur Njarðvíkur og Keflavíkur var í körfunni,, rosa leikur þar sem öruggur sigur okkar Grænu Kallanna var mjög sætur. Muggurinn fékk að koma inná í 2 mínútur og var það mjög gaman þar sem Ljónagryfjan var bókstaflega stútfull af fólki og voru meira að segja krakkar á gólfinu og hefur það ekki gerst síðan að ég var ennþá með pela held ég. Eftir leikinn var sko kátt á hjalla en svo þegar eldri leikmenn liðsins voru að fara ,,skemmta,, sér þá fór ég að vinna með ,,SisterDiet,, mönnum ( Helgi og Dabbi ) og vorum við næturverðir í Flugeldasölu fótboltans í Kef. Var það bara Fifa og Gotterí sem að hélt okkur vöku og ein heimsókn og já óvæntar atriði sem að já var mjög bara gaman af.

Já var maður svona líka rosalega hress á Gamlársdag alveg búinn að sofa einhverja 8 tíma síðustu 2 nætur og var ég heima allt kvöldið. Jeb Ivey og frú voru í mat með fjölskyldunni og öðrum gestum og var það nokkuð gaman. Svo var farið í Gullborgina rétt fyrir miðnætti og sprengt upp að hætti pabba þar sem hann er með delluna kallinn sko. En fékk ég heiðurinn á að sjá um sýninguna að þessu sinni þar sem kallinn er farinn að eldast, fékk maður alveg klapp fyrir þetta. Svo þegar nýja árið var gengið í garð kom afmælisbarnið Þröstur Leó að sækja mig, búinn að vera með bílpróf í 50 mínútur. Kallinn skutlaði mér í Sjávarþorpið Grindavík og stóð hann sig með prýði. Var ég þar í fínum félagsskap sveitamanna og gaman að prufa svona sveitamenningu á nýársnótt. Rosa fínt kvöld og var maður kominn heim með dömunni um 5 leitið.

Já nýja byrjaði rosavel og strax á nýársdag þá heimtaði ég æfingu sótti pabbi mig snemma á nýársdag og skutlaði mér á æfingu. Já svo var bara chill í anda nýársdags sem endaði svo með að ég, Alma og Dabbi skelltum okkur á myndina ,,The Chronicles of Narnia,, já sem var bara algjört Bull,, je minn eini.. Ég botnaði ekkert í þessu tjóni og hló nú bara að þessu. Alveg í ruglinu þessi mynd, mæli svo sem með henni ef þið viljið heyra dýr tala, sem er alltaf jafn kjánalegt þegar það er ekki teiknimynd. En já skemmtilegasta við þetta var bara að litla stelpan í myndinni er alveg eins og Einar Þjálfari og bið ég fólk um að tékka á því,, Snilld.

Já svo tók við körfuboltatörn, 2.janúar var leikur í 11.flokki við Keflavík. 8 liða úrslit í bikarnum og var víst fyrir leikinn að það yrði ekkert auðvelt að bera sigur úr bítum og vorum við staðráðnir í að vinna þá og halda rúmlega 4 ára sigurgöngu áfram. Lentum við í vandræðum í fyrri hálfleik þar sem HeartBeat ( Hjörri ) var á bekknum en og í hálfleik vorum við 10 stigum undir held ég. En svo í seinni hálfleik þá náðum við að koma til baka og vinna öruggan sigur fyrir framan nokkuð vel skipaðan áhorfendabekk og vil ég þakka öllum sem mættu fyrir að hafa gert þetta skemmtilegt. En já nibbaði ég einhverjum 24 stigum held ég og já var ég þokkalega sáttur bara. Svo var ekki lengi verið í paradís því strax daginn eftir var haldið vestur á Ísafjörð þar sem við flugum og töpuðum naumlega eftir hræðilegan leik með 4 stigum í Unglingaflokki. Já gistum svo á Ísó en svo áttum við að fljúga heim daginn eftir en Nei nei ,, viti menn þá var flugi aflýst og kl:4 var ákveðið að keyra heim og byrjuðum við að fara ófæra leið þar sem við festumst einhverstaðar uppí fjalli eins algerir Voffar og já þurftum að staldra við þar í nokkurn tíma og svo snérum við aftur á Ísafjörð og þá var kl: orðin 7,, 3 tímar farnir í vaskinn var nottla bara einmitt það sem við þurftum. En svo var haldið áfram og ætluðum við að borða á Súðavík og korter yfir 7 þá var nottla búið að loka öllu á Súðavík, þvílík heppni. Nottla bara hneysa að allt sé lokað kl: 7, þá mega menn nú bara sleppa þessu. En já þá var ekkert annað að gera en að keyra 200 km meðfram djúpinu og firðunum og yfir heiðarnar í glötuðu veðri og hálku og vorum við loksins komnir á Hólmavík rétt fyrir 10. Búnir að vera svangir í aðeins 4 tíma.. Fallega líka. En já eftir það var nokkuð greið leið heim og var mjög gaman að sjá hversu stjörnubjartur himininn var. Aldrei séð hann svona flottan áður. En var þetta eina sem maður gat gert allan tímann, reynt að sjá einhvað skemmtilegt útúr kolsvörtu umhverfinu,, váá allt svo æðislegt  þarna. En já vorum við komnir heim rétt fyrir 3 og sagði ég þá bara LOKSINS. Svo í gær var leikur í Borgarnesi í meistaraflokki sem að tapaðist reyndar, erfiður völlur þar á bæ. En núna eru ferðalögin búin þangað til á Sunnudag þegar Þorlákshöfn fær heiðurinn á að fá okkur, en þessi ferðalög eru sko alveg að gera útaf við mann.

En jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra að þessu sinni. Muggurinn þreyttur og ávallt mikið að gera. Á morgun eru risatónleikar í Höllinni og mun ég segja frá þeim næst. Svo er aðeins 21 dagur í bílprófið hjá kallinum og þá þurfiði að fara passa ykkur.. En þangað til næst. Líf og Fjör og reyniði að forðast Súðavík.

Lög Dagsins: So Beautiful með Darren Hayes og Boogie Boogie með Sveittum Gangavörðum..

Súðavík. Váá það bara iðar allt af mannlífi þarna.

Kv. Muggur Moðhaus - Þreyttur ferðalangur.


» 15 hafa sagt sína skoðun

28.12.2005 17:43:30 / Muggur

Ást í paradís, Lífsins ljós ,, Alveg svaðalega fín Jól.

Já komið þið öll blessuð og sæl.

Muggurinn er kominn aftur núna alveg vel endurnærður eftir jólasteikina. Ætla aðeins að segja frá Jóladögunum í stuttu máli,,

Já Aðfangadagur var mjög fínn og já svolítið klassískur að þessu sinni, samt með smá svona skrýtnu ívafi en það var bara gaman. Eftir bloggstund seint á Aðfangadagsmorgunn vaknaði maður klukkan 10 eldferskur og skellti sér á Hafnargötuna með pabba gamla til þess að klára síðustu innkaupin og mátti einungis sjá karla vera versla í búðum bæjarins. Alveg hvað menn eru korter i jól að bjarga andlitinu á sér en já svo var farið heim og svo farið í það að dreifa jólakortunum sem er hefðbundinn liður á Aðfangadag, með jólalögin í botni hlaupandi á milli húsa einsog alger brík. Tók þetta sinn tíma og hálf 4 var nibbað sér heim og átti maður von á rólegheitum, en neinei YfirMuggurinn hann bróðir minn var greinilega ofsa þreyttur eftir jólatraffíkina í Smáralind þannig að auðvitað þurfti hann að gleyma spariskónum í litla sjávarþorpinu ( Reykjavík ) og já nottla tískuóður maður eins og hann þurfti nottla að fá sína skó, gat ekki sætt sig við gamla skó neinei, þurfti fínu flottu skóna sína með tá sem er hátt í meter á lengd ,, ég skil ekki svona :D en já ákváðum ég og pabbi að fá okkur bíltúr klukkan 4 þar sem að brósi þurfti að vera laga humarinn. En já var æfingaaksturinn settur á og brunað í bæinn og til baka á mettíma og er ég sannfærður að ég ætti að heita Rúnar Raikkonen, þvílíkur ökumaður. Já í bakaleiðinni var farið með pakka til dömunnar í Grindavík og já mjög gaman bara. Var maður kominn heim 20 í 6 og já mjög sáttur með þennan millitíma. Já svo var bara Jólabaðið og maturinn og pakkarnir og fékk maður margt nothæft í gjöf að þessu sinni. Svo var endað á að nibba sér í Grindavík og já Aðfangadagur bara rosagóður :D

Næstu 2 dagar einkennast að jólaboðum hjá flestum Íslendingum og já fór ég í Rvk á Jóladag og já eftir það kom maður heim og fékk ég þá heimsókn frá Bítilnum og Önnu Akureyring og var skellt sér í Trivial sem var fínasta skemmtun,, jájá og svo var bara sleepysleepy því kl: 11 á Annan Jóladag var æfing. Jájá eftir það var nibbað sér í Grindavík og chillað og var Muggurinn í mat þar um kvöldið,, rosa fínt bara,, jájá.. Eftir það var hitt vinkonur Ölmu og spilað og enduðum við í Popppunkti og hvað haldiði, auðvitað vann Gullborgarbúinn enda hefði ekki verið hægt að setja það á ferilskrána að hafa tapað fyrir Sveitamönnum :D segi svona,, Reynt var að svindla á manni en ekkert gekk hjá þeim, og í verðlaun fékk ég bara skapofsa og var Anna Þórunn sem lenti í öðru sæti bara byrjuð að beita ofbeldi,, alveg sko,, greinilegt að það er enginn agi á svona fólki útá landi,,

Já rosafínir jóladagar en í gær var ökuskóli 2 eins og næstu 2 kvöld og já má segja að þetta séu leiðindi,, en reyndar er þetta allt skylda til þess að fá bílprófið þannig að ég sætti mig við þetta..Ég nota bara reynsluna og mæti bara með Bauk og gotterí og þá er ég nokkuð fínn. Eftir skólann í gær var skundað sér til Önnu og nibbað sér í pottinn,, úff langt síðan við gerðum það síðast og já var þetta mjög fróðlegt þar sem að þetta er kallað *SlúðurPottur* og er látið ALLT flakka.. já mjög gaman af því ,, :D og já var gamla gengið loksins saman komið aftur( Ég, Dabbi, Helgi, Anna og Steinunn ).. Og já mjög fínt bara..

Þessi jól bara búin að vera rosalega fín og hefur maður náð að slappa ágætlega af.. Á næstunni eru svo leikur á föstudaginn í deildinni með M.fl á móti Keflavík og eiga allir að mæta, Svo er það Gamlársdagur og þá kemur BloggAnnáll ársins og megið þið hlakka til þess :D  Svo vil ég biðja fólk hérna á Gullborgarsvæðinu að taka frá kvöldið 2.janúar þegar Njarðvík og Keflavík mætast í stórleik í 8 liða úrslitum bikarsins í 11.flokki. Það verður rosalegt :D  En ég held að þetta sé komið gott að þessu sinni, Muggurinn að fara undirbúa sig fyrir leiðindi kvöldsins.. Verðið að bíða þangað til á Laugardag, Farið vel með ykkur.  Líf og Fjör

Já áramótin eru tími flugelda og rakst ég á þessa mynd. Æskuvinur minn og fyrrveradni töflusérfræðingur Brynjar Ásmundsson er flugeldastjóri Björgunnarsveitarinnar. Vil ég óska honum til hamingju með þetta.. Farið varlega :D

Og ein létt getraun hérna fyrir ykkur: Í hvaða mynd er þetta? Siggi Mæjó? Sigurður Mæjónes? ..

Verðlaun fyrir fyrsta rétta svar..

Lög Dagsins: Lífsins Ljós með Bubba og Hung Up með Madonnu,, stuð. En svo vil ég mæla með plötunni Rokkland 2005,, snilld.

Muggur Moðhaus - Vel saddur og rosa ökumaður


» 23 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 03:08:28 / Muggur

Í kvöld, Jólin eru að koma.. Þorlákur í Rvk. Stemmari :D

Já  Blessssaður.

Já Muggurinn er að komast í jólaskap. Kominn tími til. En ég gat ekki staðið við bloggið síðustu helgi þar sem landsliðsæfingar voru allsráðandi og bara engin tími eins og svo oft síðustu vikur enda mikið að gera hjá Muggabandalaginu.

Já mikið að gera og svona slatti að segja frá svo sem, í síðustu viku þá fékk karlinn útúr prófunum og náði maður auðvitað öllu og fínustu einkunnir bara í gangi,, jább svo um kvöldið var jólaball FS og var það haldið í Grindavík og já ekkert svakalega nibbuð stemming og var því farið snemma af ballinu og skellt sér á rúntinn og svo bara heim,, Já svo Föstudag-Mánudag þá voru landsliðsæfingar ásamt því að sinna dömunni og svona og já var þetta bara fínasta helgi og endaði hún á Jólaballi í Grindavík þar sem maður mætti á ball Grunnskólans en gestir voru leyfðir og reddaðist það,, bara fínasta skemmtun og já greinilegt að það er enginn dansskóli í Sveitinni,, segi svona :D Maður fékk útsýnistúr og já bara fínasta fólk þarna í Sveitinni.

En já á Laugardaginn var líka Jólahlaðborð í Stapanum í boði Meistaraflokks Ráðsins og buðu þeir okkur leikmönnunum og mökum og var þetta mjög gott. Maturinn vel nibbaður af Halla Nibbara og var þessi stund bara til fyrirmyndar. Allir ungu mennirnir þraukuðu stutt og byrjuðu að tölta burt eftir að belgurinn hafði verið fylltur. Byss var þreyttur og nibbaðist á meðan Einsi coach var mjög svangur og dvaldi víst lengi við hlaðborðið enda ekki búin að vera á mannsfæði í margar vikur.. Helv. græmmó bara útí gegn, tja ekki að virka. :D En já svo þegar skemmtiatriðin voru að byrja þá ákvað Muggurinn og Alma að skunda sér heim og var það bara fínasta ákvörðun þar sem ég frétti á götunni að Jónsi í Svörtum Fötum hefði verið á eftir Muggnum, greinilega hefur hann komist í Hatt&Fatt Special DVD Edition  og var víst óður í að hitta Muggson,, en þar sem að ég var með ,,litlu píkunni,, þá vildi ég nú ekki hafa svona æsta aðdáendur í kringum mig ;) Hann verður því að bíða bara og já hlýtur hann að geta gert það. Fínasta Nibb og eftirrétturinn snilldargóður ásamt því að Kalkúnninn var alveg að ærast af góðu bragði. Jólin er tími matar og já það hata ég ekki..

En já svo var Heilög messa Þorláks áðan, Já fínasti dagur alltaf, Allir að reyna innbyrða eins mikla jólastemmingu og þeir geta og vilja helst láta nibbið koma sér í nibbandi nibbinibb ( Stemminguna koma  sér í gott jólaskap ). Ákvað því Muggurinn að skella sér úr Gullborginni ( Njarðvík ) og beinustu leið í Reykjavík, fyrrverandi höfuðborg áður en Njarðvík tók við. En já var ég mjög kátur snemma dags enda var ég búinn að vera í þrælkunarvinnu frá því snemma morguns við að gera hreingerningu á húsinu en það er  reyndar búið að vera Nibbið mitt í fríinu. Já Alma kom rétt um 2 og var þá skundað af stað og fyrsti viðkomustaður var Smáralind. Var labbað um gangana mjög hratt og búðirnar þutu framhjá okkur án þess að við fundum neitt inní hlýjum verslunarklasanum ( Moll ), reyndar var eitt gott og var það að ég rakst á OgVodafone bás og hvað haldi menn, maður þekkti kauðann sem var að vinna og Nibbaði ég mér á samning við Vodafone, Alman er þar og þegar maður er smá sparsamur í sér eins og ég ( Ekki  Nurlari, það er hneysa ) þá var þetta mjög sniðugt. Fékk skemmtilegt tilboð, gerði þetta að kostnaðarlausu, og fékk 3000 kall inneign og 900 frí SMS sem er nokkuð fínt.. :P Segi sko ekki nei við því. En eftir þessa uppákomu var Hamborgarabúlla Tómasar næsta nibb og var það ekkert smá gott,, uppáhaldið í miðbænum. Þá lá leiðin upp að Laugarveg, og viti menn , vitaskuld þurfti að vera þúsundamanna friðarganga að vera koma á móti okkur. Alveg klassi sko en það reddaðist og náðum við að verlsa allt á meðan foreldrarnir fóru í pakkadreifingu. Já þræddum Laugarveginn og rákumst á fullt að skrítnu fólki og svona en já bara stemmari og mæli ég með Laugaveginum. En svo þegar komið var heim var  ekta RagDog móment hjá mér, þegar ég uppgötva að veskið er ekki í vasanum.. Fer maður að nibba öllu til og frá í leit að veskinu alveg brjálaður þar sem miklir fjármunir voru. Sko seðlabúntin og var ég bara herðu það hefur skoppað uppúr vasanum og með brosið eins og alltaf. Og var sko búinn að segja við pabba, Það er sko ekki í Skífunni þar sem ég verlsaði síðast. Pottþett man eftir að hafa sett það í vasann, og svo eftir fullt af símtölum hjá pabbalí þá ákvað hann að nibba í Skífuna og vissulega var veskið það, Heppnis móment og já gaman af þessu,, en já ég er Alger Raag..

 

Mikið af fólki á gangi á Laugarveginum í kvöld. Þorláksmessa eins og hun gerist best.

En já góð Þorláksmessa og mjög góð Jól framundan. Ef ekki þau bestu í langan langan tíma. En já þá er víst komið að því að segja GLEÐILEG JÓL og ég vona að þið öll munið eiga ánægjuleg Jól með ykkar fjölskyldum. Þangað til næst Líf og Fjör og farið varlega í jólasteikina ;)

P.S. Þá fer þessi síða vonandi að lifna einhvað en það kemur pistill á milli Jóla og Nýárs og svo kemur RISA ANNÁLL eins og í fyrra. Þannig að fylgist með..

Lög Dagsins: Þorláksmessa með Baggalút, I Dare you to Move með Swithcfoot og Hear You Me með Jimmy Eat World.

Muggur Moðhaus - Í jólafýling, loksins,,


» 28 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 17:34:51 / Muggur

Maður hreinlega spyr sig.. úff,, Jólin eru að koma..

Sælt veri fólkið. ;)

Já það má segja að það sé liðið alltof langt síðan að ég kom með pistil en já svona er þetta.. Tíminn er ekki mikill þessa daganna og fær Internet tíminn að kenna á því. Reyndar er smá afsökun að ég var ekki með netið í svona 5 daga en nú er þó komið að Muggnum til þess að segja frá smávegis og vonandi að þið fyrirgefið mér þetta.. Afar vafasöm commenta skrif hafa nú þó haldið ykkur við efnið og má segja að það sé að bjarga mér. :D

En já mikið er búið að ske og hefur karfan verið á fullu ásamt því að próf hafa verið og æfingar fyrir Jólasýiningu Myllubakkaskóla og þar á milli hef ég fundið tíma fyrir dömuna sem að ermjög mikilvægt og vinina líka og já má segja að ég sé nú eiginlega útkeyrður þessa dagana. En samt einhvernveginn alveg voðalega hress.. En já ég ætla aðeins að segja frá hlutunum síðustu vikur.

  • Já körfuboltinn. Nokkrir leikir búnir, má segja frá Egilstaðaferð sem var bara fín, má segja bara algert Nibb í gegn. Já held að þeir hafi draftað manni beint úr bekkpressunni klukkutíma fyrir leik til þess að reyna dekka Frikka Stef en þessi maður og magabeltið hans áttu erfitt uppdráttar. Stór sigur þar sem Muggurinn nibbaði 2 stigum. Já svo hafa verið nokkrir leikir í Mfl. og svo líka í mínum flokki á móti könunum þar sem já 2 stórir sigrar fengust á móti slöku liði Ameríkananna. Held að þetta fólk ætti að reyna leggja meira í körfuboltann heldur en þessar blessuðu klappstýrur.. Jesús hræðilegt og svo var einn strákur sem að var svona 1.90 á hæð og þokkalega þykkur með þeim alveg bara hvað ertu að gera? Hefur ábyggilega ekki komist í lið í körfu og signaðist þá sem klappstýra. Þvílíkt æði, allavega myndi ég gera flest allt í lífinu áður en ég myndi fara gera þessa dansa fyrir framan margmenni :D
  • Próf Fs byrjuðu fyrir viku og má segja að mér sé búið að ganga furðu vel miðað við aðstæður,, þeir sem eru með mér í tímum vita hvað ég er að tala um. :D en jájá 5 próf búin af 6 og það síðasta á morgun. Er alveg viss um ég sé að ná öllu og er það bara gott mál. Maður auðvitað nibbar þessu af enda hef ég verið talinn fyrirmyndar námsmaður :D En jájá þið fáið að vita um þetta í næsta bloggi..
  • Já hefur tónlistin verið í stórum mæli hjá Muggnum núna síðustu misseri og má segja að það sé mjög gaman af því. Ég er að taka þátt í Jólasýningu Myllubakkaskóla sem svona spes gestur þar sem ég er nú útskrifaður úr skólanum. Já vorum við Hattur og Fattur sóttir til þess að hjálpa í nokkrum lögum og já bara gaman af því, reyndar er þetta skrýtið þar sem engin græn málning hylur mann og er maður núna bara þarna sem Rúnar. Og já það er svolítið skrítið en jájá bara gaman af þessu,, búinn að vera æfa soldið fyrir þetta og hefur þetta verið púsluspil með öllu öðru en svo þarf ég því miður að fá frí á 2 æfingum útaf sýningum og svolítið leiðinlegt en jájá það reddast.  Svo var ég á tónleikum á Laugardaginn í Fríkirkjunni í Reykjavík á Antony and the Johnsons, úff það var geggjað. Röddin í manninum er bara alveg geggjuð. Og líka gaman að hlusta á hann tala, því hann er alveg rosalegur hommi. Haha hægt að hlæja af svona fólki og svo var hljómurinn rosalegur í kirkjunni , snilld, og stemmingin svolítið spes með svona kertaljós og læti  .. En reyndar var trommuleikarinn eitthvað steiktur því hann svaf bara þau lög sem hann var ekki í.. Alveg fyndið, var bara dottandi með hausinn, alveg útreyktur. En næstu tónleikar á dagskrá eru 7.janúar þegar að stórtónleikar verða í Laugardalshöll.! Og það er sko ekkert smá Show í gangi. Við erum að tala um Sigur Rós, Damien Rice , Björk, Damon Albarn, Hjálmar, Múm, Ham og KK svo eitthverjir séu nefndir. Þokkalega stór elíta af vinsælum tónlistarmönnum og úff þetta verður geðveikt. Og er maður að fara með Ölmunni sem að gerir þetta að mjög góðri byrjun á nýja árinu.

En já allaveganna er þetta svona búið að vera gerast og það sem er á næstunni er fínasta helgi. Jólahlaðborð á laugardaginn hjá Njarðvíkurliðinu með mökum og úff vááá hvað það verður gott.. Svo eru jólin bara að renna í garð, tíminn líður hratt. Svo bara áramótin og bílprófið, komið niður fyrir 50 daga.. Já allt að ske gott fólk. En ég blogga um helgina. LOFA ÞVÍ !! þangað til þá ,, þá verðuru bara að taka Leiiiiigubííííl. Líf og Fjör.

Lög Dagsins : Cripple and the Starfish með Antony and the Johnsons og Nossirah Egroeg með Lokbrá.

Antony úr Antony and the Johnsons, neðri mynd úr Fríkirkjunni.

Muggur Moðhaus - Ánægður með lífið.


» 29 hafa sagt sína skoðun

28.11.2005 22:21:51 / Muggur

What we call Heaven .. Hmm.

Já góðann daginn.

Enn ein helgin liðin og fyrsti Sunnudagur í Aðventu liðinn. Svakalegt hvað þessi tími líður, maður verður orðinn gamall og feitur áður en maður veit af. Í gær Sunnudag var já voðalega fínn dagur. Snemma þá skellti ég mér í Reykjavík með mömmu, Kappinn fékk að keyra og já stóðst þá áskorun vitaskuld. Ég droppaði sjálfum mér af í Smáralind um 3 leitið og Mamsína hélt bara heim á leið. Muggurinn hitti Guðföður Muggabandalagsins, ( Jenni Bróðir ) og eyddi ágætum tíma með honum í búðinni. Alltaf get ég skoðað föt endalaust og ekki leiðinlegt að gera það í Herragarðinum. Reyndar var hann ekki sáttur með Mugginn og kallaði hann mig Blökkumann allan daginn því ég mun hafa verið í Svartra manna fötum sem að gleðja ekki hans Metro hjarta. Já þegar ég var búinn að grandskoða flestar flíkurnar í búðinni tók ég rölt um smáralind. Einn á vappinu í Blökkumanna múnderingunni rosa svalur og já gat ég ekki annað en heilsað  öðrum blökkumanni þarna og það með stæl, What up bro. Hann var alveg að digga þetta og faðmaði kallinn.. Nei reyndar hugsaði ég þetta bara en þetta hefði verið gaman. Svo labbaði ég hring og hring og hring þangað til að fólkið var farið að líta skemmtilegum augum á hvað eiginlega ég væri að gera þarna, þar sem ég þurfti að bíða frá 3-6. En þá loksins heyrði ég einhver læti koma úr Vetrargarðinum og auðvitað skundaði ég í áttina að því og viti menn.. Bara tónleikar í gangi, úff svaka stemmari þarna þar sem fullt af listamönnum komu fram, Matti söngvari Papanna, Bubbi Morthens, Raggi Bjarna, Jónsi, Beggi í Sóldögg , Bjarni Ara og fleiri. Einnig voru Heitar Lummur á staðnum og JESÚS. Hvað er að ske. 4 söngvarar sem innihalda mesta stjörnuhrap Íslandssögunnar (Kalli Bjarni ) og svo 3 aðrir sem að reyndu að meika það í IDOL en gátu það ekki. Úff, þetta var það sorglegasta sem ég hef séð, held að Hattur og Fattur hefðu verið betri og það er án allra ýkja. Góð íslensk lög bara eyðilögð. En svo sló klukkan 6 og Muggabræðurnir fóru vestur í bæ og hendu í sig gómsætum BúlluBorgara, án vafa bestu hamborgarar sem þú færð. Já svo var bara beðið í örvæntingu eftir SigurRósar tónleikunum. Loksins var svo lagt í Höllina þar sem Helgi beið í nístingskuldanum á bolnum, alltaf svo heilbrigður. Reyndar er hann svo loðinn að það kannski heldur á honum hita, segi svona :D en já leiðin lá beint í miðjustúkuna á bekk nr.2 , Held ég bara bestu sætin í húsinu. Davíð Már, Teitur, Helga J og Bryndís áttu sæti ofar og á leiðinlegri stöðum útí horni og ákváðu að tilla sér bara í tröppurnar við hliðina á okkur. Svo byrjaði Amina, 4 stúlkur sem að spiluðu svona 5 lög, voða rólegt og svo eitt rosa töff. Eftir þetta voru margir í sofustuði þar sem stemmarinn var í þeim dúr. Sá maður menn dotta en vönkuðu við sér innan skamms. Svo byrjaði hamingjan. SigurRósar menn stigu á stokk og byrjuðu á Glósóla. Mjög flott með tjald fyrir og svo hvarf það og hver smellurinn á fætur öðrum heillaði skilningsvit áhorfenda. Gömul meistaraverk í bland við nýtt efni hljómaði og sjóið í kringum þetta var svakalegt. Voru allir áhorfendur djúpt snortnir eftir þessa tóna sem að má segja að erfitt sé að fá beint í æð annarstaðar. Sá maður glitta í tár fólks í kringum sig en það var nú bara fræga og fína fólkið sem umkringdi okkur í stúkunni. Landsfrægir tónlistarmenn, leikarar, sjónvarpsfólk, pólítíkusar áttu ekki orð yfir þessu. Sjónarspilið í kringum þetta var Magnað og næstum ólýsanlegt, krafturinn og snilldin bara já. Segi ekki meir.

Annað, þá er þetta síðasta vika skólans og gengur á með prófum og veseni núna þessa síðustu 2 alvöru daga. Svo byrjar alvaran í næstu viku þegar prófin byrja. Fyrsta önnin í FS búin og má segja að hún hafi liðið bara mjög fljótt. Svo eru það Egilstaðir með körfunni á fimmtudag og já verður það bara mjög gaman. Svona fyrir ykkur sem að eru búin að vera mjög forvitin þá er kallinn kominn af markaðinum. :P Jájá, Daman kemur úr sveitinni (Grindavík) og heitir Alma Rut, Gullfalleg þó ég segi sjálfur frá ;) Segi meira frá þessu síðar. En já held að þetta sé bara komið í dag, best að snúa sér aftur að dönskunni.. :S Blogga á Fimmtudag aftur, kíkjið þá. :D Þangað til, Líf og Fjör..

Helstu móment tónleikanna: Glósóli, Ný Batterí, Viðrar vel til Loftárása, Hopp í Polla, Sæglópur og  Svefn G englar. Einnig síðasta lagið. Ólýsanleg stund og + fyrir að stúta trommusettinu. Svo gef ég honum bara falleinkunn gaurnum sem settist þéttingsfast við hliðina á Heglu. Greyið í peysu sem að amma hans prjónaði með stærra nef en Gosi. Og líka bara svona 300 aðrar lausar tröppur en NEI :D

Rosalegir á sviðinu, Sigur Rós.

Muggur Moðhaus - Snortinn,


» 73 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 18:00:34 / Muggur

Smá GilliGill og Yfirferð síðustu 2 vikur. :D

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey..

  • Fá meira skegg en Helgi.
  • Læra á gítar
  • Læra Heima, vá getur reynst erfitt
  • Lesa bók, eftir einhvern annan en Þorgrím Þ.
  • Fara á leik í NBA
  • Verða feitur gamall maður
  • Eiga minn eiginn Lazy Boy.
  • Ferðast um heiminn, úps nr 8

7 hlutir sem ég get ekki gert..

  • Get ekki fengið meira skegg en Helgi. Loðni Sauður
  • Get ekki farið í fýlu
  • Get ekki hætt að brosa
  • Get ekki gert pulsu með tungunni
  • Get ekki hreyft eyrun
  • Get ekki staðist Helga :O
  • Get ekki horft á Ástarfleyið

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið..

  • Persónuleikinn
  • Brosið
  • Augun
  • Að geta spjallað um allt
  • Alltaf hress
  • Að geta verið hún sjálf, sama um hvað öðrum finnst
  • Já ég lýg ekki, Rassinn hjálpar til :D

7 hlutir sem ég get gert..

  • Verið alveg alltof einhverfur stundum
  • Séð vel um vini mína
  • Brosað
  • Verið endalaust í Körfubolta
  • Haldið að ég sé geggjaður söngvari ( einn fyrir framan tölvuna )
  • Búið til orð eins og ,,KúríKúrí,, og ,,Mússímússí,,
  • Dansað, sérstaklega þegar ég er einn heima

7 frægir kvenmenn sem heilla mig..

  • Beyonce, úff bara eitthvað við hana

  • Samaire Armstrong,  Já geeeðeik

  • Hilarie Burton, Erum við að tala um fegurð?

  • Shannon Lucio

  • Emilíana Torrini, Snilld

  • Gabrielle Union, DAMN

  • Giesele Buendchen, Áátss.

  • Ragnhildur Steinunn, Já orðlaus.

7 orð sem ég segi oftast..

  • Jæja 
  • Núnú
  • Segðu 
  • Ekki vera Ragdog! 
  • Ertu Naut?
  •  Ertu Vankaður?
  •  Hmm, Dabbi tja, ekki vera Naut og Kítla, þó ég hafi sagt þér það.. :O

Jæja, þá er þetta ,,Gillikítl,, búið, úff búið að hræða mig frá skrifum mínum alltof lengi. Ég hræðist svona lista.

En kæru aðdáendur, núna er þó loks komið að pistli frá Muggnum.

Margt hefur gerst á undanförnum tæp 2 vikum hjá kappanum. Mikið að frétta og ætla ég að setja nokkra punkta um þetta.

  • Körfuboltinn.

Törnering í 11.flokki haldin, Unnum allt en þó bilið farið að minnka, tími komin til að spýta í lófana. 11.flokkur og U.fl taplaus í Jólafrí. Með meistaraflokki er allt á siglingu. Skoraði fyrstu stigin mín í ,,Úrvalsdeild,, um daginn og fékk all rækilega flengingu. Sár og Skurðir komu á Bossann enda menn með mikinn styrk þarna á ferð. Ennþá eru leifar af barsmíðunum en er allt að fara. Urðum Powerade-Meistarar um helgina. Fyrsti alvöru titillinn kominn í hús.

  • Skólinn.

Jább allt bara í sómanum, smá kvíði fyrir prófunum sem bara eru að læðast uppað manni. Aðeins 8 skóladagar eftir..  Hljóðnemaball FS var haldið fyrir skemmstu, vitaskuld skellti Muggurinn sér á samkomuna og skemmti sér prýðilega. Mikið var um dýrðir og átti maður bara dansgólfið, síðast sáu jafn skarpar hreyfingar hjá John Travolta í Saturday Night Fever. Hljómsveitin og Dj stóðu fyrir sínu og hélt maður nokkuð ánægður heim á leið. Annars fer bara að líða að Jólaballi og er tilhlökkunin mikil. Allt að ske.

  • Annað.

Já annað í fréttum er að Helga J. kom með negraföt frá Ameríkunni fyrir Mugginn og shii, svona dress hefur varla sést áður. Takk kærlega fyrir þetta Helga mín.. :P Svo hefur maður verið á fullu bara í allskyns stússi og farið að styttast í Jólin. Mikið er um að orðið á götunni beinist í átt að mér. Ég sný baki við sumu en eitthvað af þessu er þó satt. ;) Það kemur allt mun betur í ljós á næstu dögum. Já svo er Man Utd. en í fréttum. Stjörnuhrapið hans Fletcher kom mér ekkert á óvart og hefur ekki heyrst af manninum síðan hann sturtaði sig eftir Chelsea leikinn. Annars vegar er fyriliðinn Grimmi , Royiniho Keane hættur með okkur. Áfall fyrir besta lið í heimi að missa hann en ég treysti á fersk kaup í janúar til að bjarga þessu. Já held að þetta fari að verða gott bara. Allt að ske á næstu dögum, SigurRós á Sunnudag, Prófin að byrja, Antony and the Johnsons 10 des. Jólin, Áramótin og Bílprófið. Muggurinn hefur nóg til að hlakka til. Þangað til næst þá bara Líf og Fjör, og já , Þú verður bara að taka Leiiiguuubíííl. Til minningar um þá Þór og Danna. I Love IT

Hljómsveit Dagsins: Jet Black Joe

Söngvari Dagsins: Bubbi

Úff þetta er tvenna sem ég gæti hlustað endalaust á.

Muggur MoðHaus - Sold Out.

Oࠁ

» 32 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 21:39:18 / Muggur

Love is a many splendored thing.

Já gott fólk.

Ég sit núna einn í herberginu mínu og hlusta á Hjálma. Alveg indælt hvernig tónlist getur haft áhrif á mann. Núna hreyfi ég mig svona smá með og já er alveg að fíla þetta, og já rétt í þessu áttaði ég mig á hvað tónlist er rosalega mikilvægt fyrirbæri. Haldiði að manninum sem uppgötvaði fyrst að búa til einhver hljóð og láta aðra hlusta á þau hafi grunað að þetta yrði einn merkasti og vinsælasti hlutur í framtíðinni. Það efast ég um. Tónlist er  gersamlega í öllu, hvar sem er og er hún mjög mikilvæg í mörgu, Sem dæmi þegar fólk er í bíl væri nú ekki líflegt án þess að hafa eikkað á fóninum. Þegar fólk er að skemmta sér þarf að vera tónlist og sem dæmi eru kvikmyndir og sjónvarpsþættir mikið byggðir á tónlistinni sem er því og bara næstum í hverju sem er þá er tónlist mjög mikilvæg. Haldiði að þessum manni hafi grunað að líf fólks ætti eftir að geta breyst bara útaf tónlist? það held ég ekki..  En já þetta er bara pæling.

En já hvað haldiði, mitt lið Manchester United vaknaði loksins af værum svefni og skellti ,,Súper,, liði Chelsea. Já mikil umfjöllun hefur verið um Man U síðustu daga og hafa menn verið að velta fyrir hvort nógu góðir leikmenn séu í þeirra röðum, þar sem Man U setur stefnu á að vera með eitt af bestu félagsliðum heims. Talað hefur verið um getu leikmanna eins og Alan Smith og einnig mikið um skoska miðjumanninn Darren Fletcher, sögðu margir að hann var bara glataður og ætti engan vegin heima í röðum Rauðu Djöflanna. En um helgina var það engin annar en Fletcher sem að setti markið sem skildi liðin að og átti hann bara hörku leik.. Svaraði hann þar með mörgum og strax voru allir , Já Fletcher hann er Geggjaður.. En svo í næstu viku dettur hann aftur í meðalmennskuna og þá verður hann orðin glataður aftur,, svona er þetta bara. Ljóstr  er að Man U mun kaupa sér einhverja leikmenn á næstunni og bíður maður spenntur að sjá hvort að þeir verði nógu góðir fyrir áhorfendurna..

Annars er ég bara kátur. Framundan er góð helgi. Má segja að hún byrji snemma því að skólinn á morgun verður skemmtilegur þar sem úrslit í Beer Cup verða haldin, sem er fótboltakeppni FS. Það sem gerir það áhugavert er að það eru engan reglur, nema að kennararnir fari að skipta sér af. Og já er manni farið að hlakka til. Svo um kvöldið er Hljóðneminn og Svo Ball í kjölfarið. Þar sem ég er að keppa kemst ég bara á ballið en verður það alveg nóg,, váá það verður gaman.. Svo á föstudag er bara chill en um helgina eru svo 5 leikir. 3 í 11.flokk og eru þeir í Grafarvogi að þessu sinni. 1 á laugardag og 2 á sunnudag. Eftir leikinn á Laugardag þarf maður að nibba sér beint í Keflavíkina þar sem U.flokkur spilar á móti Keflavík kl: 16:00 og hvet ég alla til að mæta. Svo er meistaraflokks leikur á Sunnudag gegn ÍR og já eftir það verður komið nóg af ÍR næstu mánuðina. Sem sagt mikið að gera næstu daga.

Svo er mikið um spennandi hluti framundan. Aðeins 18 dagar í Sigur Rós tónleikana og svo 31 dagur í Antony and the Johnsons. Svo eru jólin á næsta leiti, og bílprófið er farið að læðast aftan að manni. En já nóg komið í dag, blogga næst um helgina. Þangað til Líf og Fjör ;)

Hvar væri þetta fólk án tónlistar ??

Lög Dagsins: Hide And Seek með Imogen Heap , Til Þín með Hjálmum ogsvo eitt gamalt og gott , Country House með Blur.

Muggur Moðhaus - Kannski Leikmaður ..


» 45 hafa sagt sína skoðun

03.11.2005 17:33:26 / Muggur

Suð Suð vestan Nibbingur.. :O

Já gott fólk..!

Nú er nibbið farið að segja til sín og ætlar Muggurinn splæsa einum pistli á ykkur. Já í síðustu viku var Vetrarfrí FS og var frí bæði fimmtudag og föstudag. Nýtti maður það vel með því að sofa út og má segja að koddinn hafi verið vel nýttur. Lítið líf var þessa daga nema einn leikur á fimmtudag á móti Haukum, eftir það var farið í 88 húsið og skellt sér á tónleika,  má segja að hafi verið smá nibb í gangi og var Muggurinn  ánægður með framgöngu mála,, Svo á föstudag var ekki gert neitt.. Farið á æfingu og svo bara tekið því rólega,, Já svo kom Laugardagurinn á hraði og kíkti ég á æfingu og svona,, svo er dagurinn svona í móðu en ég held að ég hafi verið í chillinu og svo um kvöldið komu Dabbi, Helga, Camilla og Helga J að sækja mig og fórum við á smá rúnt og svo til Camillu. Já svo bara fór fólk að flæða þangað inn, en ég ákvað þá bara að sæna (signa) litla bróðir hennar Camillu, Leonard og hafði ég ofan af fyrir honum með PS2, og var hörð barátta í NBA Street,, gaman af þessu :P En svo var bara farið þaðan og smá rúnt en svo bara nibbað sér heim vegna early weikí daginn eftir,, Já það var nibbað sér af stað til Akureyrar snemma morguns og keyrt liðlaust í ýmsum veðrum og á einum stað vorum við næstum foknir niður í fjöru en Böbba the King ( Bubbi Kóngur ) beitti ýmsum brögðum og á Akureyri komumst við án áverka.. En eftir leik sem vannst örugglega , og fékk Muggurinn um 5 mín, en náði ekki að setja hann, reyndar alveg fínt þar sem Rasskellingar bíða við skor..En já ekki komumst við heim á Sunnudagskvöldinu þar sem veðurofsi á heiðum var víst að nibbast eitthvað. Reynt aftur daginn eftir og var nú það meiri rútuferðin. 10:30 - 22:30. Við bara áttum ekki að fá að fara heim, og upplifðum allskyns hremmingar, einhver kappi missti stjórn á jeppa sínum og skautaði fram hjá okkur en þurfti að nibbast á aftari hluta rútunnar sem, Svo á Blönduósi vorum við stopp og mátti minstu muna að við rúkkíarnir yrðum étnir þar sem menn voru farnir að vera auralausir og mikið svangir,, en við sluppum og var það gott því að þegar við vorum loksins komnir frá Ósinu og komnir í Víðigerði festist rútan og þurftu allir að fara útí Nístingskuldann að moka og ýta,, úff án húfu og vettlinga í þessum gaddi varð til þess að andlitið á mér fraus og var ég með bros næsta klukkutímann,, skemmtilegu harðsperrurnar sem maður fékk í brosvöðvann :D,, Svo var erfiður kafli yfir skarð og heiðar en loksins náðum við að nibba þessum snjóbylum í burtu og vorum við komnir á beinu brautina og stefnan sett á að vera komnir heim um hálf 8.. En nei auðvitað gátum við ekki haft heppnina með okkur og þegar nokkra kílómetra vantaði að Hva.göngunum þá komum við að rosa slysi þar sem bíll kramdist vegna Gáms sem fauk yfir hana,, bara 4 tonn yfir bílinn en lifði stúlkan þó af, fáránlegt miðað við hvernig bílinn er..:O En við aðgerðirnar á þessu slysi þurftum við að vera eins og hnetur og biðum heillengi,2-3 tíma og fallega veðrið sem var á meðan, gekk á með vind og snjóhríðum. Ef ég hefði reynt að labba hefði ég fengið fría flugferð til Ameríku,. Í alvöru,, þetta var bull,, en svo þegar umferð komst aftur á, náðum við að koma okkur heim en það tók sinn tíma. Svo er ég bara búnað vera í skólanum og æfa þessa vikuna og svo keppa í kvöld, svo væntanlega á morgun og sunnudag og já verða næstu dagar bara fínir.

Ananas er bara allt gott að frétta , lenti í skrýtnu atviku um daginn, en þar sem nafn mitt á MSN hefur verið Rúnsi mjög lengi en ég breytti því í RúnarIngi fyrir stuttu. Þá fékk ég undrunar spurningu,. HEITIRU RÚNAR :O og já ég gat ekki annað en hlegið... Annars er held ég bara allt gott að frétta úr heiminum, Aron Pálmi flippaði víst í dag og flassaði fangaverði í Ameríkunni með viðstöðulausu múni. hreint út sagt alveg ógeðfellt. En já svona er bara ísland í dag. Þangað til næst þá bara vona ég að Ferguson fari að taka sig saman í andlitinu. Fergie.. Plz sell those medíokers,, Sjáum til.. Líf og Fjör..

Lög Dagsins:  Geislinn í Vatninu og Ég vill fá mér kærustu af nýjasta disk Hjálma, Svo einnig Lady in Red með Chris De Burgh

Muggur Moðhaus - Kannski Jónas , er ekki viss.. :O

Endilega Skoða Mann Vikunnar.. Gaman Gaman..


» 19 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 18:09:03 / Muggur

Vetrarfrí,, I like It.

Haallóó..

Já sælt veri fólkið , síðast skildi ég við ykkur á síðasta Fimmtudag. Má segja að helgin hafi eillega byrjað þá en var skellt sér á Traffic og skemmt sér vel þar, alltaf mikið af fólki þar á fimmtudögum þar sem Kaffihúsakvöld FS eru og já var maður sönglandi útí eitt með kassagítarstemmaranum þarna og já vel heppnað kvöld. Svo hentist maður í skólann á föstudeginum og svo smá uppí hús að skjóta. Eftir það var haldið heim og var ég heima svona mestallt kvöldið og fékk heimsóknir og svo endaði þetta á því að ég fór út á rúnt með Camillu og Helgu og já sofnaði kappinn aftur í ,, já fínsasta Föstudagskvöld. Laugardagurinn var svo ágætur bara, það var opinn dagur hjá FS og var því mætt í akademínuna eldhress kl: 1030 og smá æfing tekin. Svo var farið í skólann og verið þar til 2. Svo fór ég að keppa með U.fl þar sem já ekki mikil samkeppni var. Mjög stór sigur. Þá var haldið heim og gert sig til fyrir Matarboð með Meistaraflokknum. Það var mjög fínt og eftir það var haldið heim aðeins og svo farið til Teits í smá Teiti... Jájá má segja að mikið af fólki hafi verið á staðnum því að næstum allir voru þarna.. Allt samt voðalega friðsælt og já var alveg Geggjað gaman :P Svo var sunnudagurinn bara ágætur, slappaði af svona smá og svaf ,, og svo fór ég að keppa á móti Hetti með meistaraflokk og fékk stubburinn að spila 21 mín, jájá það var gaman og unnum við leikinn örugglega en var þetta nú ekki uppá marga fiska,, samt sem áður sigur.. Þá var farið heim og svo á rúntinn,,

Helgin búin að já má segja að hún hafi verið svona fín bara , róleg bara.. Já annars er ég þokkalega slakur á því bara þessa dagana :P Vikan búin að vera svona skóli, sjúkraþjálfun, æfing og já svo oft farið eikkað smá út á kvöldin,, En já er soldið þreyttur og blogga því bara svona stutt og laggott núna.. Núna er komið vetrarfrí og mun ég slappa af fram að helgi en á Laugardag þarf ég að skella mér til Ísafjarðar til þess að keppa eitt stykki leik og á Sunnudag er það Akureyri. Skemmtilegt svona þessi ferðalög,, En þangað til kannski á föstudag. Þá bara Líf og Fjör :D

Lög Dagsins: Creep ( Radiohead) í flutningi Damien Rice og Hjá þér með Sálinni

Kv. Muggur Moðhaus


» 29 hafa sagt sína skoðun

20.10.2005 19:04:25 / Muggur

Ég er Lúði. Góðir Tímar í vændum.

Sælt veri fólkið,,

Já loksins sest ég við lyklaborðið,, enn líður smá tími milli blogga, en bara sú ástæða er að oft er ég búinn að plana þann litla frítíma sem ég hef fyrir annað en að blogga.. En núna eru hendurnar á fullu og enn einn pistillinn er á rjúkandi ferð að koma í hausinn á mér..

Síðustu 10 daga hef ég nú bara verið í chillinu svona að mestu leyti,, ég byrja kannski á því að segja frá því að á Fimmtudag var fyrsti leikur í Deildinni og jájá var 5 stiga sigur á móti Skallagrím, alveg fínt, svo eftir leikinn var farið í og fengið sér smá kræsingar sem eru alltaf eftir leiki og já þá var mallinn mettur,, Haldið var heim og svo lá leiðin á Ránna þar sem hinn eini sanni Mugison var að spila, jájá kallinn var sprækur og var þetta hans síðasta ,,gigg,, þar sem hann spilar einn hér á landi og var húsið troðfullt og stemmingin í takt við það. Góðir slagarar, í bland við bæði nýtt og gamalt voru það sem þyrstir aðdáendur fengu að heyra og var fólk ánægt með þetta enda mjög vel gert hjá meistaranum,, :P Svo skelltu ég mér á Traffic og staldraði þar við á Kaffihúsakvöldi FS þangað til að mér var hent út ásamt Dabba.

Þá kom helgin sem að tileinkaðist mest körfubolta eins og svo oft áður.. Á föstudag fór ég á 2 æfingar og svo til Steinunnar þar Helgi Dabbi og Anna voru, já vinahópurinn saman á ný, þar sem Anna kom heim yfir þessa helgi, mjög gaman af því. Svo var farið heim ekkert seint og vaknað eldsnemma og farið í bæinn og spilað leik á móti Val í 11.flokk og svo farið í KR húsið og spilað við þá í U.Fl. 2 sigrar þar en það sem stóð uppúr var stoppið í 10-11 þar sem ég endurnýjaði kynnin mín við skyr,ávaxta og jógúrtbarinn,, úff gott.. og svo þar sem ég sá byrjun seinni hálfleiks Chealsea og Bolton en staðan var eitt núll fyrir Bolton. Á fyrsta korterinu skoraði Chealsea 4 mörk,, BULL hvað þeir eru góðir,, váá,, Um kvöldið var svo chillað bara,, þreyta í manni og ákvað ég að fara á leiguna bara,, það var fínt. Svo var vaknað aftur snemma og þurfti ég að fara dæma 3 leiki 8| ´hjá 9.flokk kvenna. Var Steffý frænka mín þar að spila með Keflavík og var sú grófasta sem ég hef séð. :D En já bara skap í henni. Svo fór ég heim og í Jakkafötin og svo beint í bæinn að spila 2 leiki í 11.flokk á móti Breiðablik og Hamar/Selfoss sem var bara já easy og sigur í fyrstu törneringu staðreynd og held ég 110 leikir í röð komnir  eikkað svoleiðis :D Þá var farið aftur í 10-11, ( nottla besta búð á landinu, nýta tækifærið) og svo aftur í KR húsið en það var leikur í M.fl sem vannst nokkuð öruggt í lokin en fékk ég ekkert að spreyta mig enda var það ekki alveg svo mikill munur,, en það kemur. Svo fór ég á American Style og í bíó með Agga, Svövu og Maríu. :P og já var það bara mjög fínt. Myndin var Flightplan sem er ágætasta skemmtun en með þessu kláraðist helgin..

Já svo er þessi vika búin að vera bara chill, skóli og körfubolti. Með nokkrum rúntum hjá Camillu inná milli, og það bara búið að vera fínt.. Í gær var tölvukvöld hjá mér Dabba og Helga og var spilað Pro Evolution 4 og verð ég að teljast sigurvegari.. hehe og voru menn ekki sáttir þegar var skundað heim á leið kl: 1 í nótt..

Já gaman af þessu, svo er ég orðinn spenntur fyrir allmörgu þessa dagana. 2 tónleikar, fyrst Sigur Rós.. váá snilld og svo Antony and the Johnsons  sem já ,, þetta er svaðalegt.. svo eru jólin á næsta leiti og aðeins 99 dagar í bílpróf.. ;)

Segi meira næst,, Þangað til farið vel með ykkur,, Líf og Fjör..

Lög Dagsins: Poke a Pal og Ég er Lúði með Mugison. Einnig Hoppipolla með Sigur Rós

Mugison, Algjör Snillingur..!

Kv. Muggur Moðhaus -  Alger LÚÐI.

P.s. Er farinnn að taka niður pantanir fyrir fyrsta rúntinn og í dag er eitt sæti laust.. :D


» 25 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 23:38:32 / Muggur

Allt er Hægt.. ef viljinn er fyrir hendi,,

Úff,,

Muggurinn er lazy,, kom fram í klukkinu,, og já mun það vera dagsatt.. Ekkert búnað nenna blogga í háu herrans tíð :O Þetta er náttúrulega óafsakanlegt en þar sem ég ætla að skella mér í þetta núna þá fyrirgefiði mér.. ;)

Já kjeppinn er búnað splæsa tónlist í tækið, og mun það vera Freddy Mercury og félgarar sem að heiðra mig með nærveru sinni þetta kvöld í bland við marga aðra.. En já ég er að pæla að skutla inn nokkrum línum um síðustu eina og hálfu viku.. :D

  • Danmerkurferð..

Svaðalegt.. já það má segja að þetta hafi sko heppnast vel gott fólk. Óendanleg móment sem að litu dagsins ljós,,shitt,, já allir Nibbarnir komnir saman og varð náttúrulega eitt heljarinnar NIBB útúr þessu. Já við unnum mótið sem var magnað, en aðal fjörið var í hótelinu og svo í Köben. Á hótelinu þá vorum við ,,rookies,, ( Ég og Hjörtur, nýliðarnir ) saman í herbergi.. Þvílík þrælkun , já okkur var þrælkað og svo var herbergið okkar mengað á versta hátt af nokkrum mönnum og já ein sú viðbjóðslegasta lykt sem ég hef fundið, ilmaði yfir herbergið og grétu menn úr hlátri yfir þessu. Svo voru menn í því að skemmta samkynhneigðu fólki á matsölustað og já var Öddi K í því að skella sér í breska persónuleikann og skemmta mönnum og enduðum við útá götu að hrópa inn um glugga staðarins, ,,Your'e Gonna Get Your Fuckin Ass Kicked In,, og já það segir allt sem segja þarf.. :D Svo var farið til Köben á Sunnudeginum og já menn allir vel í því eftir sigur í mótinu.. Tuborg í gleri á fleimi og svona og menn kátir.. Svo var komið sér fyrir á strikinu og Ernie Mac átti fyrstu skref kvöldsins með frumsömdum textum. Svo var farið að borða,, úllala það var LOVELY  :P Þá var komið að kareokee barnur SAMS.. Já mikið um dýrðir og gullmola. Ernie Mac, Geiri og Frikki Ragg stigu á svið ásamt glæsiframkomu Ödda K í laginu ,,I just Called to say i love you,, sem hann breytti í ,, I Just..... to say im GAY,, og já mikill fögnuður áhorfenda og sérstaklega gærunnar sem ætlaði að éta Öddann og já sýndi hann snilli sína í framkomu og átti þetta við þar sem hann var óðum í því að skella sér í bretann og segja,, U fuckin GAY bastard ,, en já þar með var þessari ferð nánast lokið..

Svo var farið beint í það að vinna íslensku þegar komið var heim á leið.. Ertu ekki að grínast,, 16 ritgerðir, 8 úrdrættir og hugkort, á einum degi.. JESÚS.. allt er hægt.. þetta átti að vera handskrifað og með pásum var ég til 3 aðfararnótt þriðjudags og svo vaknaði aftur 6 og eyddi svo flestum tímum í að gera þetta líka.. :D  Það reddaðist þó að ég hafi verið alveg eins og eikker RagDog þarna.. Annað gerðist ekki mikið, nema fyrsti leikur í U.Fl var á Fös, við nibbuðum hann og skutlaði kallinn 18 stigum í buckarann sem var fínt. Svo var farið í bíó á Lau. á myndina Goal. Kemur á óvart sko.. þokkalega fín mynd bara,, svo var farið heim og svo aðeins á rúntinn með Helgu, Camillu og já Helga en samt ekki Helga.. Og já var ég aftur í og fékk að njóta þess að vera undir teppi sem að Camilla var með,., og jájá mýksta teppi ,, bara MMM langar í það.. :P sko þetta á að vera staðalbúnaður.. En svo var í gær bara meistarar meistaranna.. já unnum Kef og fékk ég 32.sek  og átti eina vafasömustu ,,sendingu,, í langan tíma. En þjálfarinn sagði mér að húkka boltanum frá miðju á síðustu sekúndu og já gerði ég það en boltinn var á leið á spjaldið þegar Gilli kemur á fluginu og treður boltanum :D Magnað móment,

Annars er ég bara kátur og þokkalega slakur á því bara.. en ég segi meira seinna,, komið fínt í dag.. :P  Takk fyrir að biðja um blogg og mótmæla broskalla leysi ,, Tékkiði svo á Manni Vikunnar, en það er hún Anna Rún,, njótið vel.. þangað til næst.. Líf og Fjör..

Lög Dagsins: I just called to say i love You með Stevie Wonder (Ödda K) og svo allur Queen Greatest Hits 1.. massíft..

Kv. Muggur Moðhaus - Þokkalegur RagDog.


» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7